Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Almannatryggingar

Mál nr. 101/2021 - Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 101/2021

Miðvikudaginn 16. júní 2021

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Anna Rut Kristjánsdóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 17. febrúar 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. janúar 2021 þar sem umsókn kæranda um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða var synjað. 

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 16. nóvember 2020, sótti kærandi um félagslegan viðbótarstuðning fyrir aldraða frá 1. júlí 2020. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 19. janúar 2021, var umsókn kæranda synjað á þeim grundvelli að hann uppfyllti ekki skilyrði 2. gr. laga nr. 74/2020 um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða um dvalarleyfi samkvæmt upplýsingum frá Útlendingastofnun.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. febrúar 2021. Með bréfi, dags. 26. febrúar 2021, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 25. mars 2021, barst greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 26. mars 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi sé í þjónustu hjá sveitarfélagi og sé með fjárhagsaðstoð til framfærslu. Kærandi sé kominn yfir 67 ára aldur og glími við mikil veikindi. Kærandi sé með öllu óvinnufær og aðstæður heima fyrir séu erfiðar. Umsókn um félagslegan viðbótarstuðing við aldraða hafi verið synjað þar sem kærandi sé ekki með ótímabundið dvalarleyfi. Sú ákvörðun sé kærð og óskað eftir að undantekning sé gerð vegna aðstæðna kæranda.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé synjun á félagslegum viðbótarstuðningi við aldraða.

Málavextir séu þeir að með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 19. janúar 2021, hafi umsókn kæranda um félagslegan viðbótarstuðning verið synjað þar sem kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði um að hafa dvalarleyfi hér á landi.

Í 2. gr. laga nr. 74/2020 um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða segi að lögin taki til einstaklinga sem séu 67 ára eða eldri, hafi fasta búsetu og skráð lögheimili hér á landi og sem dvelji varanlega á Íslandi. Í 2. mgr. komi fram að ef um erlendan ríkisborgara sé að ræða sé það skilyrði að hann hafi ótímabundið dvalarleyfi hér á landi eða rétt til ótímabundinnar dvalar hér á landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga. Í 3. mgr. 2. gr. segi að heimilt sé að veita undanþágu frá skilyrði 2. mgr. hafi erlendi ríkisborgarinn dvalarleyfi hér á landi sem geti verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða hann uppfylli skilyrði 84. eða 85. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann verið búsettur hér á landi, sbr. 1. mgr., samfellt í að minnsta kosti tvö ár þegar sótt sé um félagslegan viðbótarstuðning og sérstakar aðstæður séu fyrir hendi.

Kærandi hafi sótt um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða með umsókn 16. nóvember 2020 ásamt afriti af útgefnu dvalarleyfi án dvalarleyfiskorts frá Útlendingastofnun, dags. 16. júní 2020. Í því komi fram að gildistími dvalarleyfis sé frá 10. júní 2020 til 24. maí 2021. Samkvæmt upplýsingum úr Þjóðskrá hafi kærandi verið búsettur hér á landi síðan 27. maí 2020.

Skilyrði fyrir félagslegum viðbótarstuðningi við aldraða sé að hinn erlendi ríkisborgari hafi ótímabundið dvalarleyfi hér á landi eða eigi rétt til ótímabundinnar dvalar hér á landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga. Undanþága frá þessu sé ef hinn erlendi ríkisborgari hafi dvalarleyfi hér á landi sem geti verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða hann uppfylli skilyrði 84. eða 85. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann verið búsettur hér á landi, sbr. 1. mgr., samfellt í að minnsta kosti tvö ár þegar sótt sé um félagslegan viðbótarstuðning og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.

Samkvæmt framansögðu hafi kærandi tímabundið dvalarleyfi hér á landi og hafi einungis verið búsettur hér á landi síðan 27. maí 2020. Kærandi uppfylli því ekki skilyrði fyrir greiðslu félagslegs viðbótarstuðnings og því hafi umsókn verið synjað.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. janúar 2021 á umsókn kæranda um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða.

Um félagslegan viðbótarstuðning við aldraða er fjallað í lögum nr. 74/2020. Í 2. gr. laganna er kveðið á um gildissvið laganna sem er svohljóðandi:

„Lög þessi taka til einstaklinga sem eru 67 ára eða eldri, hafa fasta búsetu og skráð lögheimili hér á landi og sem dvelja varanlega á Íslandi.

Ef um erlendan ríkisborgara er að ræða er það skilyrði að hann hafi ótímabundið dvalarleyfi hér á landi eða rétt til ótímabundinnar dvalar hér á landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga.

Heimilt er að veita undanþágu frá skilyrði 2. mgr. hafi erlendi ríkisborgarinn dvalarleyfi hér á landi sem getur verið grundvöllur ótímabundins dvalarleyfis eða hann uppfyllir skilyrði 84. eða 85. gr. laga um útlendinga, enda hafi hann verið búsettur hér á landi, sbr. 1. mgr., samfellt í a.m.k. tvö ár þegar sótt er um félagslegan viðbótarstuðning og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.“

Samkvæmt framangreindu er meginreglan sú, ef um erlendan ríkisborgara er að ræða, að viðkomandi þurfi að uppfylla það skilyrði að hafa ótímabundið dvalarleyfi hér á landi eða rétt til ótímabundinnar dvalar hér á landi samkvæmt ákvæðum laga um útlendinga. Heimilt er að veita undanþágu frá þessu skilyrði hafi erlendi ríkisborgarinn dvalarleyfi hér á landi, enda hafi hann verið búsettur hér á landi í að minnsta kosti tvö ár samfellt og sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Meðal gagna málsins er útgefið dvalarleyfi Útlendingastofnunar, dags. 16. júní 2020, með gildistíma frá 10. júní 2020 til 24. maí 2021. Í breytingasögu Þjóðskrár kemur fram að kærandi hafi flutt til Íslands 27. maí 2020.

Þar sem kærandi er hvorki með varanlegt búsetuleyfi hér á landi né hefur hann verið búsettur hér á landi í að minnsta kost tvö ár, uppfyllir hann ekki framangreind skilyrði fyrir veitingu félagslegs viðbótarstuðnings við aldraða, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2020. Engin heimild er til að víkja frá framangreindum skilyrðum vegna aðstæðna kæranda.

Með hliðsjón af framangreindu er ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 19. janúar 2021 um að synja kæranda félagslegan viðbótarstuðning við aldraða staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja A, um greiðslu félagslegs viðbótarstuðnings við aldraða, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum